Hvað viltu láta gera? Núverandi aðstaða til líkamsræktar (calisthenics park) á túninu austan við Vesturbæjarlaug (blágræn tæki) er léleg og fábreytt, og engu líkara en hún sér fyrst og síðast hugsuð fyrir börn. Hugmyndin að setja upp slíka líkamsræktaraðstöðu á þessum stað er hins vegar frábær. Við þurfum bara að gera þetta aðeins betur svo þetta nýtist íbúum betur. Hægt væri að bæta þessa aðstöðu og koma fyrir fleiri og fullkomnari tækjum. Bætt aðstaða fælist í: Betra og mýkra undirlagi (hlaupabrautarundirlag), mun fjölbreyttari tæki sem henta fullorðnum s.s. til lyftinga og styrktaræfinga, lóðréttir kaðlar, uppstigspallar auk tækja til calisthenics æfinga eins og núverandi aðstaða býður upp á (nema stærri). Fjölmargar borgir í nágrannalöndum bjóða íbúum upp á svona stöðvar og þær eru jafnan mikið nýttar. Mikill og vaxandi áhugi er á útivist og hlaupum utandyra allt árið um kring. Bætt aðstaða af þessu tagi fellur mjög vel að þessum vaxandi áhuga borgarbúa enda myndi þarna bætast við kjörin aðstaða til styrktaræfinga og til að teygja eftir hlaup. Hvers vegna viltu láta gera það? Bætt aðstaða til líkamsræktar utandyra af þessu tagi væri mikill fengur fyrir hverfið og væri afar vel staðsett þarna við sundlaugina. Framkvæmd af þessu tagi hvetur til hreyfingar og heilbrigðs lífsstíls, bætir lífsgæði íbúa hverfisins og stuðlar óbeint að sparnaði fyrir borgina enda dregur hreyfing og líkamsrækt úr tíðni lífstílstengdra sjúkdóma o.fl. Þá væri bætt aðstaða af þessu tagi einnig til nokkurra hagsbóta fyrir tekjulægri einstaklinga og námsmenn sem þarna fengju ókeypis aðgang að hluta þeirra gæða sem annars þarf að nálgast á líkamsræktarstöðvum. Þar sem engin líkamsræktarstöð er í göngufæri við flesta íbúa Vesturbæjar má einnig gera ráð fyrir að framkvæmdin dragi úr umferð bíla í hverfinu. Fjárfesting í núverandi aðstöðu á svæðinu er ekki farin í súginn ef af þessu verður heldur mætti bæta við núverandi aðstöðu eða færa núverandi tæki annað, t.d. niður á Ægisíðu þar sem enn fábrotnari aðstaða til líkamsræktar er núna (rauð tæki).
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Vesturbæjar á þriðjudaginn næstkomandi þann 30. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/446160169797749. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Kæri hugmyndahöfundur Þín hugmynd var valin á uppstillingarfundi til þess að vera á kjörseðli hverfisins í kosningunni í Hverfið mitt næsta haust. Uppstilling kjörseðila fyrir kosningarnar fór fram á fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Nánari upplýsingar hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og niðurstaðan er að margar frábærar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að þín hugmynd verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hugmyndina fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Kæri hugmyndahöfundur, kosningu í verkefninu Hverfið mitt lauk þann 14.október sl. niðurstöður kosninga má sjá á www.hverfidmitt.is, Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022. Þín hugmynd hlaut ekki kosningu að þessu sinni. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation