Það væri gaman að setja meira af ávaxtatrjám og berjarunnum og öðru sem ber ætilegar afurðir inn í og við göngustígana og trén í Elliðaárdal (bæði fyrir neðan og ofan stíflu). Það væri skemmtilegt að labba um síðsumars og á haustin með krakkana og geta tínt ber og mögulega ávexti.
Þessi hugmynd var sameinuð við hugmyndina Gróðursetning við Vorsabæ/Hlaðbæ.
Frábær hugmynd, myndi auka útivist og bæta umhverfið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation